Stytting vinnuvikunnar

Góð heilsa er það dýrmætasta sem hver manneskja á og sveitarfélög eiga að styðja og hvetja íbúa til heilbrigðs líferni.

Rannsóknir hafa sýnt að stytting vinnuviku bætir andlega og líkamlega líðan starfsmanna og auðveldar þeim að samræma fjöskyldu- og atvinnulíf, sem er mikilvæg forsenda þess að búa í fjölskylduvænu samfélagi.

Tilraunaverkefni í höfuðborginni sýndi að stytting vinnuviku án launaskerðingar bætti andlega og líkamlega líðan starfsmanna, jók starsánægju og dró úr veikindum. Reykjanesbær gæti gengið á undan með góðu fordæmi og stytt vinnuviku starfsmanna sinna.