Stjórnsýsla

Allir hafa hag af því að gera upplýsingar eins aðgengilegar og hægt er eða eins og lög leyfa.

Öll stjórnsýslugögn sbr. fjárhagsgögn eiga að vera aðgengileg á vef sveitarfélagsins í takti við kröfur samfélagsins um opna stjórnsýslu og gagnsæi.  Eins og staðan er í dag þarf að sækja sérstaklega um gögn sem er bæði tímafrekt og flókið ferli.  Aukið gagnsæi eykur traust íbúa sem er hagstætt fyrir alla uppbyggingu til framtíðar.