Ferðamaðurinn

Vinstri græn og óháðir í Reykjanesbæ vilja auka aðgengi ferðamannsins til að komast til miðbæjarins frá flugstöðinni með bættum strætisferðaleiðum.

Skapa þarf betri og fleiri tjaldstæði í göngufæri við  miðbæinn sem mun styrkja verslun og þjónustu á Hafnargötunni.

Reykjanesbær geri kröfur að hluti af þeim hagnaði sem myndast af ferðaþjónustu verði eftir á svæðinu til uppbyggingar ferðaþjónustu t.d. tjaldsvæða.

Fólk af erlendum uppruna sem flytur til Reykjanesbæjar þarf að hafa aðgengi að miðlægu setri sem veitir þær upplýsingar sem fólk þarf á að halda í daglegu lífi. Innflytjendur og flóttafólk þarf að fá aðgengi að túlkaþjónustu, stuðningsþjónustu varðandi skóla og heilbrigðisþjónustu. Foreldrar af erlendum uppruna eiga rétt á túlkaþjónustu í skólum og á heilsugæslu.