Húsnæðismál

Öruggt og heilsusamlegt húsnæði er grundvallar mannréttindi og skal vera tryggt öllum til handa.

Öruggt og heilsusamlegt húsnæði er grundvallar mannréttindi og skal vera tryggt öllum til handa.

Vinstri græn munu setja húsnæðismál á oddinn í komandi kosningum. Við viljum tryggja að í boði sé fjölbreytt húsnæði með fjölbreyttu búsetuformi sem miðast við þarfir hvers og eins. Sveitarfélögunum ber að leggja áherslu á að leysa þetta verkefni án tafar.

Vinstri græn vilja húsnæðiskerfi sem drifið er áfram af félagslegum hugsjónum frekar en hagnaðarsjónarmiðum.
Það er óviðunandi að meira en helmingur tekna heimilisins fari í húsnæði. Það er stefna okkar að miða skuli við að eðlilegur húsnæðiskostnaður heimilanna fari ekki yfir fjórðung ráðstöfunartekna.

Sveitarfélögin verða þegar í stað í samvinnu við ríkið að leita leiða til fólk geti haft fullnægjandi húsnæði á viðunandi kjörum. Gera verður þá kröfu til ríkisins að sveitarfélögum verði gert kleift að bjóða upp á félagslegt húsnæði í samræmi við þörf og lagalega ábyrgð.

Algjörlega er óásættanlegt að fólk þurfi að bíða í meira en þrjú ár eftir félagslegu leiguhúsnæði í Kópavogi, en það er núna meðal biðtíminn hjá Kópavogsbæ. Barnafjölskyldur eru þarna á meðal og þrjú ár er langur tími í lífi barna. Það er forgangsverkefni að bæta úr þessu.

Vinstri græn vilja koma á samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar húsnæðismál, ekki síst félagslegt húsnæði. Öll sveitarfélögin eiga að bera ábyrgð á íbúum svæðisins og ekkert þeirra á að geta skorast undan.
Vinstri græn vilja að íbúðarhúsnæði verði vistvænt og í sátt við umhverfið, hvort sem horft er til nærþjónustu, byggingarefna, orkunotkunar eða annarra þátta.

  • Öruggt og heilsusamlegt húsnæði er grundvallar mannréttindi og skal vera tryggt öllum til handa.
  • Stórauka uppbyggingu á félagslegu leiguhúsnæði
  • Samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar húsnæðismál, ekki síst félagslegt húsnæð Öll sveitarfélögin eiga að bera ábyrgð á íbúum svæðisins og ekkert þeirra á að geta skorast undan.
  • Samvinna við ríkið, stéttarfélög og lífeyrirsjóði til auðvelda fólki að hafa fullnægjandi húsnæði á viðunandi kjö