Fjölskyldumál

Við leggjum áherslu á jafnrétti og hefur VG skýra stefnu í þeim málum. Ávallt þarf að fylgjast með að jafnrétti sé í raun innan stjórnsýlunnar og á stofnunum sem heyra undir sveitafélagið og lagfæra það sem miður fer.

VG í Borgarbyggð vill:

  • standa vörð um starfsstöðvar skólanna
  • bæta aðstöðu nemenda og kennara bæði hvað varðar húsnæði og mönnun skólanna
  • bjóða upp á fríar skólamáltíðir fyrir leik- og grunnskólabörn
  • auka aðgengi að íþróttum og tómstundum til dæmis með fríu aðgengi í íþróttamannvirki fyrir eldri borgara og auknu samstarfi íþróttafélaga og skóla
  • auka framlög til menningarmála í héraði