Jafnréttismál

Sveitarstjórnum ber að tryggja jafnrétti kynja og jafnræði allra íbúa. Sveitarfélögum ber að sporna gegn kynbundnu ofbeldi, klámvæðingu, mansali og vændi og vinna gegn skaðlegum áhrifum staðalmynda. VG Akureyri vill:

  • Uppræta margþætta mismunun og kynbundinn launamun
  • Stuðla að auknum jöfnuði kynja þegar kemur að náms- og starfsvali
  • Jafna aðgengi að fjármagni og ákvarðanatöku, t.d. með kynjaðri fjárhagsáætlunargerð og þátttökulýðræði
  • Tryggja jafnréttis- og hinseginfræðslu auk forvarnafræðslu um kynbundið ofbeldi í öllu skóla- og uppeldisstarfi ásamt því að veita slíka fræðslu starfsfólki og íbúum sveitarfélagsins
  • Auka stöðugildi jafnréttisfulltrúa