Jafnréttismál

Sveitarfélögum ber að tryggja jafnrétti kynjanna og uppræta kynbundinn launamun. Vinna þarf gegn kynbundnu ofbeldi, klámvæðingu, mansali, vændi og skaðlegum áhrifum staðalmynda. Tryggja þarf jafnréttis- og hinseginfræðslu auk fræðslu um kynbundið ofbeldi í skólum.

Á kjörtímabilinu höfum við:

  • Stutt hinseginfræðslu í skólum bæjarins.
  • Unnið að jafnlaunavottun hjá Mosfellsbæ en bærinn fékk gullmerki Jafnlaunavottunar PwC nú í vor.
  • Endurskoðað verkferla hjá sveitarfélaginu í kjölfar meetoo-byltingarinnar.

Vinstri græn vilja:

  • Tryggja jafnrétti kynjanna í allri starfsemi sveitarfélagsins og vera á varðbergi gagnvart kynbundnum launamun.
  • Efla jafnréttis- og kynjafræði í leik- og grunnskólum bæjarins.
  • Berjast gegn kynbundnu ofbeldi og efla forvarnir og viðbrögð innan stjórnsýslunnar gegn því.
  • Vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna meðal starfsfólks sveitarfélagsins og stuðla að því að störf innan þess skiptist ekki í kvenna- og karlastörf.
  • Horfa til jafnréttissjónarmiða í allri ákvarðanatöku í málefnum sveitarfélagsins.