Málefni eldra fólks

Virkjum kraft, reynslu og þekkingu eldra fólks og vinnum gegn aldursfordómum. Þjónusta sveitarfélagsins þarf að vera í samræmi við þarfir og vilja eldra fólks og að forræði málaflokksins verði hjá sveitarfélaginu.

Stóreflum heimaþjónustu og leggjum áherslu á að þeir sem það kjósa geti búið sem lengst í heimahúsum.

Þrýstum á ríkið að fjölga hjúkrunarrýmum í Hafnarfirði.

Við styðjum heilshugar óskerta atvinnuþátttöku eldriborgara.

Í Hafnarfirði þurfa búsetukostir að vera fjölbreyttari, þannig að fólk eigi raunverulegt val um búsetu. Styðja þarf við uppbyggingu leiguhúsnæðis.

Hafnarfjarðarbær skal hafa aðkomu að stofnun húsnæðisleigufélags sem rekið er án hagnaðarsjónarmiða og íbúðir leigðar á sanngjörnu verði.

Stóraukum úthlutun lóða fyrir lítil sérbýlishús auk lóða fyrir smærri fjölbýlishús. Þannig verða til litlar íbúðir, lítil raðhús og lítil einbýlishús sem auðvelda eldra fólki að minnka við sig og ungu fólki að hefja búskap.

Hefjum viðræður við ríkið um úrræði þannig efnaminna fólki verði gert kleift að kaupa fasteign.

Bregðast þarf strax við brýnni þörf og stytta langa biðlista eftir félagslegu húsnæði með fjölgun íbúða í eigu sveitarfélagsins.