Menningarmál

VG í Borgarbyggð vill veg menningarstofnanna sveitarfélagsins sem mestan, enda eiga þau að vera eitt helsta aðdráttarafl ferðamanna og eru flaggskip sveitarfélagsins.

Söfnin og stofnanir sveitarfélagsins bera þess  glöggt merki að hér er vagga menningar í sínum fjölbreyttustu formum. Safnkosturinn er gríðarlega mikill og viljum við skoða möguleikann á því að fjölga sýningum yfir styttri tíma svo fleiri munir fái notið sín. Menning felst þó í fleiru en því sem alltaf hefur verið og því er mikilvægt að styðja vel við unga listamenn héraðsins hvort sem það felst í aðstöðu til listsýninga eða annars.

Listahátíðin Plan- B er til að mynda mjög vel heppnað framtak sem á vafalaust eftir að stækka og dafna í framtíðinni. Jafnframt er þáttur áhugafólks í menningarlífi sveitarfélagsins stór og við hann þarf að styðja, í því felst meðal annars kórastarf héraðsins, leikfélögin og önnur félög sem leggja til menningarstarfseminnar. Þess vegna ætti sveitarfélagið að leggja meira í menningarsjóð til að gera fleirum kleyft að hljóta stuðning til skapandi verkefna.